Amorim með áhugaverða klásúlu - Man City sýnir Mainoo áhuga - Juve vill Silva - Liverpool gæti gert tilboð í Araujo
   sun 06. september 2020 17:41
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Þýskaland: Afar dramatískur sigur hjá Söndru í fyrsta leik
Kvenaboltinn
Sandra og lið hennar byrjar á sigri.
Sandra og lið hennar byrjar á sigri.
Mynd: Mirko Kappes
Hann var rosalegur leikurinn þegar Freiburg tók á móti Íslendingaliði Bayer Leverkusen í 1. umferð þýsku úrvalsdeildarinnar í dag.

Sandra María Jessen var í byrjunarliði Leverkusen og spilaði allan leikinn í það sem reyndist vera vægast sagt dramatískur sigur.

Freiburg tók forystuna með marki úr vítaspyrnu þegar lítið var eftir af fyrri hálfleiknum og var staðan 1-0 alveg fram á 87. mínútu. Þá jafnaði Leverkusen og í uppbótartímanum kom svo sigurmarkið.

Frábær sigur fyrir Leverkusen sem var í mikilli fallbaráttu á síðasta tímabili.

Sjá einnig:
Sandra María: Þakklát fyrir að fá að upplifa drauminn
Athugasemdir
banner
banner