06.09.26 - 19:48
Ívan Guðjón Baldursson
2. deild kvenna: Fylkir getur farið upp með sigri

Mynd: Fylkir

Mynd: Fylkir

Mynd: Fylkir

Það fóru tveir leikir fram í 2. deild kvenna í dag og er spennan í toppbaráttunni rosaleg fyrir lokaumferðina.
Það eru aðeins þrjú stig sem skilja fjögur efstu liðin að, eftir að Fylkir lagði Vestra að velli á Ísafirði í dag.
Eva Stefánsdóttir skoraði eina mark leiksins á 66. mínútu til að tryggja Fylki möguleika á að komast upp í Lengjudeildina.
Lokatölur urðu 0-1 og deila Fylkir og Vestri þriðja til fjórða sæti deildarinnar með 33 stig. Þau eru einu stigi á eftir Einherja í öðru sæti og þremur stigum á eftir toppliði Fjölnis fyrir lokaumferðina.
Fylkir spilar við Einherja í lokaumferðinni og getur tryggt sér sæti í Lengjudeildinni með sigri. Vestri á afar litla möguleika á að ná einu af tveimur efstu sætunum útaf slakri markatölu miðað við keppinauta sína. Vestri þarf því að sigra topplið Fjölnis og vonast eftir jafntefli hjá Fylki og Einherja til að komast upp um deild.
ÍR og KFR gerðu þá 3-3 jafntefli í neðsta hluta deildarinnar. Liðin sigla þar lygnan sjó með 15 stig eftir 16 umferðir.
Vestri 0 - 1 Fylkir
0-1 Eva Stefánsdóttir ('66 )
ÍR 3 - 3 KFR
1-0 Tara Dís Ármann ('12 )
2-0 Hólmfríður Þrastardóttir ('49 )
2-1 Kristín Sóldís Ólafsdóttir ('51 )
2-2 Kristín Sóldís Ólafsdóttir ('66 )
2-3 Carla Martinez Cuadros ('73 )
3-3 Tara Dís Ármann ('78 )

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Fjölnir | 16 | +49 | 36 |
| 2 | Einherji | 16 | +50 | 34 |
| 3 | Fylkir | 16 | +65 | 33 |
| 4 | Vestri | 16 | +36 | 33 |