Fotbolti.net
06.09.26 - 11:34
Brynjar Ingi Erluson

Aubameyang setti met í La Liga

Aubameyang setti met í La Liga
Canon

Mynd: EPA

Framherjinn Pierre-Emerick Aubameyang hefur farið á kostum með nýja liði sínu, Deportivo La Coruna, í La Liga á Spáni og tókst að setja met með frammistöðu sinni í gær.
Aubameyang gekk í raðir nýliða Deportivo í sumar frá franska félaginu Marseille.

Í gær lagði hann upp tvö mörk og skoraði eitt í 3-2 sigri á Villarreal og hefur Deportivo fengið átta stig úr fyrstu fjórum leikjunum.

Þessi 37 ára gamli leikmaður hefur nú skorað í fyrstu fjórum leikjum sínum í La Liga og er elsti leikmaðurinn til þess að ná þeim áfanga á þessari öld og sá fyrsti yfir þrítugt til að gera það síðan Fernando Morientes gerði það með Valencia árið 2006.

Deportivo ætlar sér stóra hluti í deildinni og fékk inn marga öfluga leikmenn í glugganum, en þar má nefna Jose Maria Gimenez frá Atlético Madríd, Adama Traore frá West Ham, Angelino frá Roma og Marc Casado frá Barcelona.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.