Fotbolti.net
06.09.26 - 11:55
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Everton og Man Utd: Carrick breytir ekki sigurliði - Grealish á bekknum

Bruno Fernandes er á sínum stað í liði Man Utd

Bruno Fernandes er á sínum stað í liði Man Utd

Canon

Mynd: EPA

Everton tekur á móti Manchester United í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Hill Dickinson-leikvanginum í Liverpool-borg klukkan 13:00 í dag.
Man Utd vann sinn fyrsta deildarsigur á tímabilinu gegn Ipswich í síðustu umferð eftir tap fyrir Hull í fyrstu umferðinni. Everton hefur á sama tíma unnið einn leik og gert eitt jafntefli.

David Moyes gerir eina breytingu á byrjunarliði Everton og hún er óhjákvæmileg. Brennan Johnson kemur inn í stað Iliman Ndiaye sem var seldur til Manchester City undir lok félagaskiptagluggans.

Jack Grealish og Ainsley Maitland-Niles byrja á bekknum eftir að hafa gengið til liðs við félagið fyrir gluggalok. Grealish sneri aftur á láni frá Man City en Maitland-Niles kom frá Lyon.

Michael Carrick breytir ekki sigurliði og stillir upp sömu ellefu leikmönnum og unnu Ipswich. Hann fær þó liðsstyrk á bekkinn þar sem Mason Mount er laus við meiðsli og snýr aftur í hópinn.

Everton: Pickford; Röhl, Tarkowski, Branthwaite, Mykolenko; Garner, Armstrong; Dewsbury-Hall, Johnson, George; Barry.

Man Utd: Lammens; Dalot, Maguire, Martínez, Shaw; Tielemans, Mainoo; Mbeumo, Fernandes, Rashford; Cunha.



Grealish er á bekknum hjá Everton

Grealish er á bekknum hjá Everton

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City6+1118
2Arsenal6+515
3Brighton6+1313
4Brentford6+610
5Everton6+310
6Chelsea6+210
7Leeds6+39
8Hull City6+29
9Liverpool609
10Ipswich Town6-39
11Newcastle6-38
12Crystal Palace6-37
13Man Utd606
14Coventry6-66
15Nott. Forest6-35
16Aston Villa6-55
17Sunderland6-64
18Bournemouth6-63
19Tottenham6-63
20Fulham6-42
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.