06.09.26 - 17:27
Ívan Guðjón Baldursson
England: Meistararnir alltof stór biti fyrir Chelsea

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Arsenal 2 - 1 Chelsea
0-1 Morgan Rogers ('2)
1-1 Kai Havertz ('25)
2-1 Martin Ödegaard ('50)
0-1 Morgan Rogers ('2)
1-1 Kai Havertz ('25)
2-1 Martin Ödegaard ('50)
Englandsmeistarar Arsenal mættu nágranna- og fjandliði sínu Chelsea í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Hinn rándýri Morgan Rogers, sem var meðal efstu manna á óskalista Arsenal í sumar en skipti að lokum til Chelsea fyrir um 120 milljónir punda, skoraði fyrsta mark leiksins strax á annarri mínútu. Boltinn datt vel fyrir hann eftir atgang í vítateig Arsenal og sýndi Rogers mikla tæknilega getu til að klára með marki. Hann fagnaði svo hjá hornfánanum að hætti Thierry Henry, stuðningsmönnum Arsenal til mikillar gremju.
Lærlingar Mikel Arteta blésu til sóknar eftir þetta opnunarmark og sköpuðu mikið af færum. Riccardo Calafiori kom boltanum í netið eftir aukaspyrnu en markið ekki gilt vegna rangstöðu, áður en Kai Havertz jafnaði með frábæru skoti á 25. mínútu.
Arsenal var talsvert sterkari aðilinn í skemmtilegum fyrri hálfleik en tókst ekki að ná forystunni, svo liðin gengu til búningsklefa í stöðunni 1-1. Chelsea átti einhverjar marktilraunir en David Raya stóð vaktina vel á milli stanga meistaraliðsins.
Martin Ödegaard, fyrirliði Arsenal, náði forystunni fyrir heimamenn snemma í síðari hálfleik eftir frábæra hreyfingu hjá Havertz sem leyfði sendingu frá Christos Tzolis að renna til Ödegaard sem kláraði örugglega úr dauðafæri.
Chelsea reyndi að skapa sér færi en komst lítið áleiðis gegn gríðarlega öflugri varnarlínu Arsenal. Raya gerði vel að verja góðar marktilraunir utan af velli og komust heimamenn nálægt því að tvöfalda forystuna, en tókst ekki.
Sigur Arsenal virtist aldrei í hættu og urðu lokatölur 2-1. Meistararnir eru því með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir og sitja lærlingar Xabi Alonso eftir með sex stig eftir fjöruga sigra í fyrstu tveimur umferðunum.