Fotbolti.net
06.09.26 - 15:04
Brynjar Ingi Erluson

England: Nýi maðurinn tryggði stig gegn Man Utd með stórbrotnu marki í lokin

Everton náði í stig með marki á lokasekúndum leiksins

Everton náði í stig með marki á lokasekúndum leiksins

Canon

Mynd: EPA

Everton 2 - 2 Manchester Utd
0-1 Bryan Mbeumo ('46 )
1-1 Tyrique George ('83 )
1-2 Benjamin Sesko ('88 )
2-2 Ainsley Maitland-Niles ('90 )
Everton og Manchester United gerðu 2-2 jafntefli í bráðfjörugum leik í 3. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Hill Dickinson-leikvanginum í Liverpool í dag. Ainsley Maitland-Niles bjargaði stigi fyrir heimamenn með stórbrotnu marki á lokasekúndunum í sínum fyrsta leik fyrir félagið.

United byrjaði betur en það fór þó um Michael Carrick, stjóra liðsins, á upphafsmínútunum þegar Harry Maguire fékk þungt högg í andlitið í skallaeinvígi við Thierno Barry.

Meiðsli í vörninni eru það síðasta sem Carrick þarf á að halda eftir að félaginu mistókst að styrkja þann hluta liðsins í sumar. Maguire harkaði þó af sér og hélt leik áfram.

Bruno Fernandes komst næst því að brjóta ísinn. Luke Shaw tók laglegan sprett upp vinstri vænginn og sendi fyrir á Bryan Mbeumo sem skallaði boltann fyrir Fernandes. Portúgalinn tók hann viðstöðulaust á lofti og þrumaði í þverslána.

Everton átti fínan kafla undir lok fyrri hálfleiks og Barry fékk besta færi heimamanna en skallaði yfir.

Markalaust var í hálfleik en Mbeumo kom United yfir strax í upphafi þess síðari með stórkostlegu einstaklingsframtaki.

Kobbie Mainoo sendi út á Kamerúnann á hægri vængnum og hann sá um rest. Mbeumo dansaði á milli varnarmanna, keyrði að teignum og skoraði með skoti rétt utan hans niður í vinstra hornið.

United kallaði eftir vítaspyrnu á 62. mínútu þegar Marcus Rashford sýndi silkimjúka takta í teignum og hælsendi á Matheus Cunha. James Tarkowski kom hins vegar til bjargar með frábærri tæklingu. Gestirnir töldu hann hafa brotið á Cunha en í endursýningu sást að hann vann boltann löglega.

Everton þyngdi sóknina þegar leið á leikinn og uppskar að lokum jöfnunarmark. Varamaðurinn Hayden Hackney tók góðan sprett að vörn United, missti boltann en fékk hann aftur af varnarmanni og lagði út til hægri á Tyrique George.

Skotstaðan virtist ekki sérstaklega góð en George lét samt vaða og boltinn söng efst í hægra horninu. Spyrja má hvort Senne Lammens hefði átt að loka betur á hornið en skotið var bæði fast og hnitmiðað.

Heimamenn voru komnir með stig í hendur en United náði aftur forystunni. Shaw, sem hafði verið öflugur í vinstri bakverðinum, geystist upp vænginn og sendi frábæra fyrirgjöf á dauðafrían Benjamin Sesko sem stangaði boltann í netið.

Þetta var fyrsta mark Sesko á tímabilinu en hann bíður enn eftir sínu fyrsta tækifæri í byrjunarliðinu. Markið virtist ætla að tryggja United sigurinn en mesta dramatíkin var enn eftir.

Tæp mínúta var liðin umfram uppgefinn uppbótartíma þegar Everton sótti fram í síðasta sinn. Boltinn var hreinsaður út fyrir teiginn þar sem Maitland-Niles mætti og þrumaði honum efst í vinstra hornið. Lammens stóð hreyfingarlaus eftir.

Draumabyrjun hjá Maitland-Niles sem gekk í raðir Everton frá Lyon undir lok gluggans og byrjar á því að tryggja stig.

Everton er því enn taplaust og situr í 8. sæti með fimm stig. United er í því ellefta með fjögur stig.
Mbeumo skoraði eftir frábært einstaklingsframtak

Mbeumo skoraði eftir frábært einstaklingsframtak

Canon

Mynd: EPA

England: Nýi maðurinn tryggði stig gegn Man Utd með stórbrotnu marki í lokin
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.