06.09.26 - 22:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fyrrum Serie A stjörnur rifust heiftarlega í Istanbúl

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fenerbahce tók á móti Besiktas í risaslag í tyrknesku deildinni í gær þar sem margar þekktar stjörnur úr evrópska fótboltaheiminum öttu kappi.
Fyrrum stjörnur úr ítölsku Serie A deildinni og ensku úrvalsdeildinni voru á vellinum þegar Milan Skriniar og Dusan Vlahovic, sem skoruðu báðir í leiknum, tóku að rífast heiftarlega. Þeir rifust á ítölsku og fengu ýmis blótsyrði að fljúga áður en bundið var enda á rifrildin.
Mattéo Guendouzi, sem er þekktari fyrir að stofna til átaka frekar en að stilla til friðar, reyndi að stía mönnunum í sundur en á dvöl sinni í ítalska boltanum léku þeir lengst af fyrir erkifjendurnar Inter og Juventus.
Vlahovic skoraði sigurmarkið í 1-2 sigri Besiktas en Ederson, Nathan Aké, Mason Greenwood, Leandro Trossard, Nelson Semedo og Alexander Nübel voru einnig meðal byrjunarliðsmanna á meðan Romelu Lukaku og Wilfred Ndidi komu inn af bekknum.
Besiktas er í öðru sæti tyrknesku deildarinnar með 9 stig eftir 4 umferðir. Fenerbahce er með 6 stig.
Ríkjandi meistarar Galatasaray eiga 10 stig á toppnum.
Sjáðu átökin í Istanbúl