06.09.26 - 11:51
Brynjar Ingi Erluson
Gagnrýnir Ronaldo - „Eins og þeir séu manni færri“

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sádi-arabíski blaðamaðurinn Abdulkarim Al-Zamil gagnrýnir portúgalska framherjann Cristiano Ronaldo harðlega fyrir frammistöðu hans í byrjun tímabils.
Ronaldo er 41 árs gamall og spilar líklega sitt síðasta tímabil á ferlinum. Hann hefur þó enn skýrt markmið: að rjúfa þúsund marka múrinn.
Portúgalinn hefur skorað 978 mörk og vantar því aðeins 22 til viðbótar. Tvö þeirra hafa komið í fyrstu fjórum deildarleikjum tímabilsins, gegn Al Riyadh og Al Taawoun.
Al-Zamil gagnrýndi Ronaldo eftir 2-1 tapið fyrir Al Ittihad í gær og sagði veru hans inni á vellinum koma niður á liðinu.
„Þegar Ronaldo spilar með Al Nassr er eins og liðið sé manni færri, þótt honum takist að skora. Þetta er sannleikur sem margir kjósa að líta framhjá.“
„Markmið Al Nassr er að vinna titla á meðan Ronaldo reynir að rjúfa þúsund marka múrinn.“
„Það er bæði honum og liðinu fyrir bestu að hann spili aðeins í síðari hálfleik,“ sagði Al-Zamil.