Fotbolti.net
06.09.26 - 17:06
Brynjar Ingi Erluson

Hinrik Harðar skoraði annan leikinn í röð - Stórsigur hjá FCK

Hinrik Harðar er að gera góða hluti hjá Egersund

Hinrik Harðar er að gera góða hluti hjá Egersund

Canon

Mynd: Egersund

Hinrik Harðarson var á skotskónum annan leikinn í röð er hann gerði eina mark Egersund í 1-1 jafntefli gegn Lyn í norsku B-deildinni í dag.
Framherjinn gekk til liðs við Egersund frá Odd í sumar og hefur farið frábærlega af stað.

Hann skoraði úr vítaspyrnu í dag og er kominn með tvö deildarmörk fyrir Egersund, jafnmörg og hann skoraði fyrir Odd fyrr á tímabilinu. Hann er því með fjögur deildarmörk og hefur einnig skorað tvö í bikarnum.

Egersund er í 8. sæti með 28 stig.

Kolbeinn Birgir Finnsson lék allan leikinn með Vålerenga sem bjargaði 2-2 jafntefli gegn Sarpsborg með tveimur mörkum undir lokin. Vålerenga er í 11. sæti með 22 stig.

Júlíus Magnússon byrjaði á miðjunni hjá Elfsborg í 2-1 tapi fyrir Brommapojkarna í sænsku úrvalsdeildinni. Ari Sigurpálsson kom inn af bekknum í síðari hálfleik en Gabríel Snær Gunnarsson sat allan tímann á bekknum. Elfsborg er í 5. sæti með 31 stig, fjórum stigum frá Evrópusæti.

Guðlaugur Victor Pálsson var í vörn Horsens sem vann 5-2 sigur á SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni. Brynjar Ingi Bjarnason tók út leikbann hjá SönderjyskE eftir að hafa fengið rautt spjald í síðasta leik. Horsens er í 6. sæti með tíu stig en SönderjyskE á botninum með eitt stig.

Íslendingalið FCK pakkaði OB saman, 5-0. Viktor Bjarki Daðason var í byrjunarliðinu en fór af velli í síðari hálfleik. Rúnar Alex Rúnarsson og Gunnar Orri Olsen sátu báðir allan tímann á bekknum.

FCK er á toppnum með 18 stig, fjórum stigum á undan Midtjylland sem á leik til góða.

Sigurður Bjartur Hallsson var fremstur í liði Merida í 1-0 tapi fyrir Cultural Leonesa í spænsku C-deildinni. Merida er með þrjú stig eftir tvo leiki.

Andri Fannar Baldursson byrjaði á miðjunni hjá Kasimpasa sem gerði 2-2 jafntefli við Amedspor í tyrknesku úrvalsdeildinni. Kasimpasa er með sex stig eftir fjóra leiki.

Lúkas Petersson stóð í marki varaliðs Hoffenheim í 1-0 tapi fyrir Grossaspach í þýsku C-deildinni. Þetta var annað tap liðsins á tímabilinu en það er með sex stig eftir fjóra leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.