Fotbolti.net
06.09.26 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson

Joao Félix mjög ósáttur með sádi-arabísku deildina

Joao Félix mjög ósáttur með sádi-arabísku deildina
Canon

Mynd: Al-Nassr

Portúgalski sóknarleikmaðurinn Joao Félix var afar ósáttur eftir 2-1 tap hjá Al-Nassr gegn Al-Ittihad í sádi-arabísku deildinni í gær.
Al-Nassr er í öðru sæti með 12 stig eftir 5 fyrstu umferðirnar, þremur stigum á eftir Al-Hilal sem er með fullt hús stiga.

Joao Félix, sem er liðsfélagi Cristiano Ronaldo, Kingsley Coman og Sadio Mané meðal annars, neitaði að svara spurningum fréttamanna eftir tapið.

„Ég ætla ekki að tala við þig, útaf því að ef ég geri það mun ég afhjúpa það sem er í gangi í deildinni," sagði Félix við fréttamann á leiðinni út.

Samlandi hans og liðsfélagi Ronaldo hefur áður gagnrýnt deildina fyrir að gefa Al-Nassr ekki nægilega góða leikmenn og þá hefur hann verið gagnrýninn í garð dómgæslunnar, en ekki er ljóst hvað Félix átti nákvæmlega við í gær.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.