Fotbolti.net
06.09.26 - 13:25
Brynjar Ingi Erluson

Jón Dagur lagði upp sigurmarkið og Hertha með fullt hús stiga

Jón Dagur lagði upp sigurmarkið og Hertha með fullt hús stiga
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Íslenski landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson lagði upp sigurmarkið þegar Hertha Berlín vann 2-1 sigur á Magdeburg í þýsku B-deildinni í dag.
Jón Dagur sneri aftur til Herthu í sumar eftir lánsdvöl hjá Brann í Noregi.

Hann byrjaði tímabilið á bekknum en hefur unnið sér sæti í byrjunarliðinu með frábærri frammistöðu í síðustu leikjum.

Jón Dagur skoraði í 5-3 sigri í síðasta leik og hélt uppteknum hætti í dag. Hann lagði þá upp annað mark Herthu fyrir Oluwaseun Adewumi á 47. mínútu sem reyndist sigurmarkið.

Sjáðu markið hér

Þetta mark kom Herthu upp í toppsæti deildarinnar en liðið er þar með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.