Fotbolti.net
06.09.26 - 12:54
Brynjar Ingi Erluson

Kom inn af bekknum og bjargaði stigi

Hólmbert skoraði annað deildarmark sitt á tímabilinu

Hólmbert skoraði annað deildarmark sitt á tímabilinu

Canon

Mynd: Gwangju FC

Hólmbert Aron Friðjónssson bjargaði stigi fyrir Gwangju í 2-2 jafntefli gegn Gimcheon Sangmu í suður-kóresku deildinni í dag.
Hólmbert kom inn af bekknum hjá Gwangju á 60. mínútu þegar liðið var 2-0 undir.

John Iredale minnkaði muninn sex mínútum síðar og Hólmbert jafnaði svo metin þegar tólf mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Þetta var annað deildarmark hans á tímabilinu en hann hefur einnig lagt upp tvö mörk.

Gwangju situr á botninum með 13 stig þegar sjö umferðir eru eftir og fátt bendir til annars en að liðið falli.

Brynjólfur Andersen Willumsson var í byrjunarliði Groningen í 2-2 jafntefli við Twente í hollensku úrvalsdeildinni. Kristian Nökkvi Hlynsson var ekki með Twente vegna meiðsla. Groningen er í 9. sæti með 7 stig en Twente í því sjötta með jafnmörg stig og betri markatölu.

Ólafur Hjaltason og Daniel Ingi Jóhannesson komu báðir inn af bekknum undir lokin er Aarhus Fremad vann 2-1 sigur á Kolding í dönsku B-deildinni. Ólafur er á mála hjá Fremad en Daniel er á láni hjá Kolding frá Nordsjælland. Fremad er í 4. sæti með 12 stig en Kolding í 9. sæti með 6 stig.

Bjarni Mark Antonsson og Oskar Sverrisson voru báðir í byrjunarliði Trelleborg sem tapaði fyrir Skövde, 2-1, í sænsku C-deildinni. Trelleborg er þrátt fyrir tapið í efsta sæti suður-riðilsins með 39 stig eftir tuttugu umferðir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.