Fotbolti.net
06.09.26 - 16:57
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeild kvenna: Selfoss gerði út um drauma HK

Lengjudeild kvenna: Selfoss gerði út um drauma HK
Canon

Mynd: Hrefna Morthens

Kvennaboltinn
Tveir leikir fóru fram í næstsíðustu umferð deildartímabilsins í Lengjudeild kvenna í dag þar sem Selfoss gerði út um drauma HK að fara upp í Bestu deildina í bili.
Selfyssingar leiddu 2-0 í hálfleik og urðu lokatölur 3-1 á Selfossi en hvorugt liðið kemst upp í Bestu deildina að sinni.

Selfoss er með 29 stig fyrir lokaumferðina, en er þremur stigum á eftir KR sem er með talsvert sterkari markatölu.

HK er með 27 stig og hefði átt möguleika á að stela öðru sætinu af KR í lokaumferðinni, en fær ekki tækifæri til þess.

Á sama tíma hafði Keflavík betur gegn FHL en bæði liðin sigla lygnan sjó í neðri hluta deildarinnar.

Keflvíkingar komust í þriggja marka forystu áður en gestirnir minnkuðu muninn, lokatölur 3-1 í Keflavík alveg eins og á Selfossi.

Keflavík tryggði sæti sitt í Lengjudeildinni stærðfræðilega með þessum sigri. Liðið er með 21 stig, þremur stigum minna heldur en FHL.

Selfoss 3 - 1 HK
1-0 Juliana Marie Paoletti ('12 )
2-0 Védís Ösp Einarsdóttir ('31 )
2-1 Katrín Ágústsdóttir ('64 )
3-1 Sara Rún Auðunsdóttir ('73 )

Keflavík 3 - 1 FHL
1-0 Olivia Madeline Simmons ('15 )
2-0 Guðrún Þórarinsdóttir ('26 )
3-0 Ariela Lewis ('37 )
3-1 Alexis Simone Wright ('45 )
Lengjudeild kvenna: Selfoss gerði út um drauma HK
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Grótta18+2641
2KR18+2935
3Haukar18+1833
4HK18+1530
5Selfoss18+730
6FHL18+725
7ÍA18+524
8Keflavík18+521
9Völsungur18-1415
10Tindastóll18-983
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.