06.09.26 - 10:35
Brynjar Ingi Erluson
Liverpool ætlar að reyna aftur við Sarr í janúar - Richarlison til Sádi-Arabíu?

Liverpool vill fá Ismaila Sarr

Mynd: EPA

Richarlison er orðaður við Sádi-Arabíu

Mynd: EPA

Liverpool vill fá Ismaila Sarr

Mynd: EPA

Liverpool hefur enn áhuga á að landa Ismaila Sarr, Richarlison vill fara til Sádi-Arabíu og Mikel Arteta er að skrifa undir nýjan samning við Arsenal. Þetta er allt saman í Powerade-slúðurpakka dagsins.
Liverpool íhugar að gera aðra tilraun til að fá senegalska vængmanninn Ismaila Sarr (28) frá Crystal Palace í janúar. Félögunum tókst ekki að ná samkomulagi fyrir gluggalok. (Football Insider)
Brasilíski framherjinn Richarlison vonast til að yfirgefa Tottenham á næstu dögum og halda í sádi-arabísku deildina, en félagaskiptaglugginn þar er opinn til 12. október. Hann var orðaður við Trabzonspor í Tyrklandi en þar lokaði glugginn á föstudag. (Standard)
Arsenal er að ganga frá nýjum samningi við spænska stjórann Mikel Arteta en núgildandi samningur hans rennur út í lok tímabilsins. Þá færist félagið einnig nær því að framlengja við Declan Rice (27), Martin Ödegaard (27) og Jurrien Timber (25). (Teamtalk)
Arsenal hefur spurst fyrir um þýska vængmanninn Kevin Schade (24) hjá Brentford. Brentford hefur hins vegar ekki í hyggju að selja hann að svo stöddu. (Teamtalk)
Manchester United ætlar að fylgjast áfram með stöðu enska vinstri bakvarðarins Lewis Hall (21) hjá Newcastle. (Football Insider)
Belgíski miðjumaðurinn Amadou Onana hefur skrifað undir nýjan samning við Aston Villa til ársins 2031. (Sacha Tavolieri)
AC Milan hefur enn áhuga á Goncalo Inacio (25), varnarmanni Sporting í Portúgal, og gæti boðið í hann í janúar. (Tuttomercatoweb)
Man Utd er áfram í viðræðum við Leicester City um enska miðjumanninn Louis Page (18) eftir að félaginu mistókst að landa honum fyrir gluggalok. (MEN)
Lyon íhugaði að fá framherjann Karim Benzema (38) aftur til félagsins áður en hann ákvað að gerast sérstakur sendiherra sádi-arabísku deildarinnar. (L'Equipe)
Aston Villa og Sunderland höfðu áhuga á franska varnarmanninum Matthieu Udol (30) undir lok gluggans en Lens neitaði að láta hann fara. (Foot Mercato)