Fotbolti.net
06.09.26 - 11:42
Brynjar Ingi Erluson

Neymar meiddur og gæti verið frá í átta vikur

Neymar meiddur og gæti verið frá í átta vikur
Canon

Mynd: EPA

Brasilíski sóknarmaðurinn Neymar gæti verið frá í allt að átta vikur vegna meiðsla. Santos þarf því að bjarga sér án hans í baráttunni við falldrauginn annað árið í röð.
Santos hefur staðfest að Neymar hafi meiðst á lærvöðva í bikarleiknum gegn Palmeiras á dögunum.

Hann fór af velli í hálfleik í markalausu jafntefli en Palmeiras komst áfram eftir 3-0 sigur í fyrri leiknum.

Samkvæmt RMC Sport gæti Neymar verið frá í allt að átta vikur og því ekki snúið aftur fyrr en í nóvember.

Þetta er mikið áfall fyrir Santos sem hefur treyst mjög á framlag hans í sóknarleiknum frá því hann sneri aftur til uppeldisfélagsins. Neymar hefur skorað átta mörk og lagt upp önnur átta í öllum keppnum á tímabilinu.

Meiðslin koma á afar slæmum tíma fyrir Santos sem er í fallbaráttu annað árið í röð. Liðið er í 14. sæti, aðeins fjórum stigum frá fallsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.