Fotbolti.net
06.09.26 - 14:32
Brynjar Ingi Erluson

Nökkvi sá rautt í endurkomunni - „Í þessu tilviki hefði gult spjald dugað“

Nökkvi sá rautt í endurkomu sinni til Telstar

Nökkvi sá rautt í endurkomu sinni til Telstar

Canon

Mynd: Telstar

Nökkvi Þeyr Þórisson fékk að líta rauða spjaldið í fyrsta leik sínum með Telstar síðan hann kom aftur frá Spörtu Rotterdam, en hann sá reisupassann eftir aðeins 22 mínútna leik.
Framherjinn lék með Telstar á láni frá Spörtu á síðustu leiktíð en er nú kominn aftur til félagsins.

Hann var í byrjunarliðinu gegn Cambuur í dag en var rekinn af velli snemma leiks fyrir brot á Billy van Duijl. Dómarinn fór beint í rauða spjaldið en það virtist heldur harður dómur.

„Það þarf að uppfylla vikulegan kvóta af rauðum spjöldum. Nökkvi Þórisson fær rautt spjald sem hefði átt að fara á loft 30 kílómetrum austar í gærkvöldi. Í þessu tilviki hefði gult spjald dugað,“ skrifaði blaðamaðurinn Martijn Schwillens á X.

Þar vísaði hann til þess þegar Ruben van Bommel keyrði leikmann Ajax harkalega niður í gærkvöldi en slapp með gult spjald.

Hægt er að sjá brottrekstur Nökkva hér fyrir neðan, ásamt atvikinu úr leiknum í gær.

Annars lauk leik Telstar og Cambuur með 2-2 jafntefli þar sem heimamenn í Telstar jöfnuðu seint í uppbótartíma og eru því með 4 stig eftir fimm leiki.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.