06.09.26 - 11:30
Ívar Björgvinsson
Umdeildasta atvikið á dómaraferli Mike Dean

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Fyrrum knattspyrnudómarinn Mike Dean hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga eftir hluti sem hann lét út úr sér falla í hlaðvarpi sem enginn annar en Jamie Vardy stjórnar. Þar fór hann um víðan völl en það sem vakti helst athygli er það hvernig hann lýsti því að hann, ásamt öðrum ónafngreindum dómurum, léku sér að alls konar þrautum á meðan þeir dæmdu leiki í ensku úrvalsdeildinni.
Hann tók fram að hann hafi viljandi reynt að standa eins lengi inni í miðjuhringnum og hann kæmist upp með og einnig reynt að komast sem lengst af án þess að flauta í flautu sína. Eftir það hafa margir rifjað upp umdeild atvik tengd Mike Dean og velt því fyrir sér hvort eitthvað grunsamlegt hafi verið í gangi þar.
Líklega er frægasta atvikið tengt honum þegar Tottenham skorar gegn Aston Villa í leik í ensku úrvalsdeildinni og virtist hann fagna vel og innilega.
Atvikið er eitt það frægasta þegar kemur að dómurum í knattspyrnusögunni en Mike Dean útskýrði sína hlið eftir leik. Hann vildi meina að hann hafi verið svo sáttur með ákvörðun sína að beita hagnaði, en sú ákvörðun skilaði marki. Mousa Dembélé var togaður niður en náði að standa það af sér og keyrði inn á teiginn og skoraði.
Mike Dean tók þá góðan sprett og gerði alls kyns handahreyfingar og virtist manna sáttastur með að Tottenham hafi skorað. Sjón er sögunni ríkari en atvikið má sjá hér að neðan.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist þann 4. september á áskriftarvef Fótbolta.net en hér að neðan má finna pistilinn í heild sinni og hægt er að smella á fréttina og gerast áskrifandi til þess að lessa alla greinina.

On the subject of Mike Dean. Let’s not forget how he celebrated a Spurs goal against Villa at the old White Hart Lane ???? pic.twitter.com/nffwjsxxo8
— Jay White (@jaywhite_1) September 4, 2026

TENGT EFNI