Fotbolti.net
06.09.26 - 19:30
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Gjaldkeri KR sáttur - Áfangar hjá Oliver og Markusi - Skoraði þriðju þrennuna - Met hjá KR

Oliver Ekroth náði stórum áfanga þegar Víkingur mætti Fram.

Oliver Ekroth náði stórum áfanga þegar Víkingur mætti Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Úrslit dagsins í 22. umferð Bestu deildar karla þýða að Víkingar fara aftur Vesturbæinn eftir tvær vikur en fá Fram í heimsókn í 27. og síðustu umferðinni 24. október. KA fær heimaleiki gegn bæði Þór og ÍBV í fallbaráttunni í neðri hlutanum og Akureyrarslagurinn á að fara fram 20. september.

Skandinavíubúarnir Oliver Ekroth úr Víkingi og Markus Lund Nakkim úr Val náðu stórum áföngum á sínum ferli í 22. umferðinni um helgina og sama er að segja um Keflvíkinginn knáa Stefan Ljubicic. Höskuldur Gunnlaugsson hækkar enn á metalista Breiðabliks og Skagamaðurinn Viktor Jónsson sökkti KR-ingum með þrennu sem var alls ekki sú fyrsta á ferlinum.

KR hefur slegið markamet og Víkingar eru einnig yfir gamla metinu. Valsmenn náðu áfanga en meira um þetta allt saman og leikina sem framundan eru næstu vikurnar hér fyrir neðan.

Úrslitin í 22. umferð:
Keflavík - Valur 1-2
Þór - FH 1-0
ÍA - KR 3-1
Víkingur - Fram 2-2
KA - Breiðablik 2-1
Stjarnan - ÍBV 2-2

Staðan:
Efri hluti: Víkingur 53, Fram 45, KR 44, Breiðablik 30, ÍA 30, Keflavík 28.
Neðri hluti: Stjarnan 28, Valur 27, FH 21, Þór 21, KA 20, ÍBV 18.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.