Fotbolti.net
06.09.26 - 10:30
Víðir Sigurðsson

Víðir Sig: Vinnur fjórða eða fimmta sætið umspilið? Afturelding setti met og fallbaráttan líka söguleg

Þróttur og Njarðvík mætast í undanúrslitum í umspilinu.

Þróttur og Njarðvík mætast í undanúrslitum í umspilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur úr Reykjavík, Fylkir, HK eða Njarðvík. Eitt þessara fjögurra liða mun vinna umspil 1. deildar karla sem hefst á miðvikudaginn, fylgir Aftureldingu upp í Bestu deildina og leikur þar árið 2027.

Njarðvíkingar hafa beðið lengst af þessum fjórum liðum eftir því að vinna sér sæti í fremstu röð íslenskra knattspyrnufélaga. Þeir hafa aldrei leikið í efstu deild og eru í umspilinu í annað sinn. Þróttur lék síðast í efstu deild árið 2016 en HK og Fylkir féllu bæði þaðan haustið 2024.

Þróttarar höfnuðu í öðru sæti fyrstu deildarinnar í ár með 43 stig og þeir mæta Njarðvík sem hafnaði í fimmta sæti með 38 stig. Fylkismenn höfnuðu í þriðja sæti með 40 stig og þeir mæta HK sem endaði í fjórða sæti með 38 stig. Sigurliðin í þessum einvígjum, heima og heiman, mætast í úrslitaleiknum á Laugardalsvellinum. Leikjadagskrá umspilsins er þannig:

Miðvikudagur 9. september:
Njarðvík – Þróttur R. kl. 17.00
HK – Fylkir kl. 19.15
Sunnudagur 13. september:
Fylkir – HK kl. 14.00
Þróttur R. – Njarðvík kl. 16.15
Úrslitaleikur á Laugardalsvellinum 19. september:
Þróttur/Njarðvík – Fylkir/HK kl. 16.00
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.