Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 06. október 2020 19:00
Victor Pálsson
Carragher um leikinn: Ég fór næstum að hlæja
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, fyrrum fyrirliði Liverpool, var nálægt því að hlæja á sunnudaginn er hann horfði á leik liðsins við Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni.

Villa kom öllum á óvart og burstaði Liverpool 7-2 á Villa Park en það var enginn sem gat séð þau úrslit verða að veruleika.

Vörn Liverpool var í raun ömurleg í þessari viðureign og hefur Carragher smá áhyggjur af hvernig liðið spilaði leikinn.

„Ég var næstum því hlæjandi. Ég trúði ekki mínum eigin augum. Þú tengir þetta ekki við Liverpool liðið. Þetta eru ótrúleg úrslit sem og frammistaðan. Svo sannarlega sú versta undir Jurgen Klopp," sagði Carragher.

„Það sást mjög snemma að Liverpool hafi ekki byrjað vel. Fyrstu fimm mínúturnar voru hættulegar og það var áhugavert að hlusta á Ollie Watkins eftir leik hvernig þeir tóku á hápressunni."

„Jafnvel þó að Liverpool sé með góða tölfræði varnarlega þá líkar mér ekki við hvernig þeir reyna að spila menn rangstæða. Ég er ekki sammála þessu."

Athugasemdir
banner
banner
banner