Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 06. október 2020 23:35
Victor Pálsson
Wijnaldum tjáir sig um Barcelona sögusagnirnar
Mynd: Getty Images
Georginio Wijnaldum, leikmaður Liverpool, hefur tjáð sig um orðróminn sem gekk á um að hann væri á leið til spænska liðsins Barcelona.

Wijnaldum var sterklega orðaður við Barcelona um tíma en félagaskiptaglugginn lokaði í gær og ljóst að Hollendingurinn fer ekki neitt.

Miðjumaðurinn á aðeins tíu mánuði eftir af sínum samningi og gæti því skoðað stöðu sína aftur í janúar.

„Ég held að áhuginn hafi ekki verið mjög mikill því annars hefðuð þið lesið meira um þetta eða þá að þetta hefði gerst," sagði Wijnaldum.

„Ég þurfti ekki að hugsa um þetta. Það er útlit fyrir að ég verði áfram hjá Liverpool. Ég á tíu mánuði eftir af samningnum. Það gæti alltaf breyst í fótboltanum svo við sjáum til."

Athugasemdir
banner
banner