Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 06. október 2021 23:41
Brynjar Ingi Erluson
Styttist í endurkomu Rashford - Skoraði tvisvar í æfingaleik
Marcus Rashford
Marcus Rashford
Mynd: EPA
Enski framherjinn Marcus Rashford skoraði tvö mörk í 3-0 sigri Manchester United á Blackburn Rovers er liðin mættust í æfingaleik í dag.

Leikurinn fór fram bakvið luktar dyr en Rashford var í byrjunarliði United.

Hann hefur ekkert spilað með liðinu á þessari leiktíð eftir að hafa gengist undir aðgerð á öxl eftir Evrópumótið í sumar.

Rashford snéri aftur til hefðbundinna æfinga fyrir tæpri viku síðan og spilaði svo í 3-0 sigri á Blackburn Rovers í 60 mínútna leik í dag.

Hann gerði tvö mörk í leiknum og virðist styttast í endurkomu hans en það er ljóst að hann gæti fengið mínútur eftir landsleikjatörnina.

„Ég vona að hann verði með gegn Leicester. Hann hefur verið að æfa og lagt mikið á sig," sagði Solskjær við fjölmiðla í síðustu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner