Nik Chamberlain: Ég verð áfram hjá Þrótti

Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Þróttur heimsótti Stjörnuna á Samsungvöllinn í kvöld í síðustu umferð Bestu deildarinnar. Það var ekki mikið undir hjá Þrótturum fyrir leikinn og gátu þær í besta falli farið upp fyrir Stjörnuna og endað þar með í 3. sæti með sigri. Það var raunin og enduðu þær mótið á 1-0 sigri.
„Mjög ánægður að hafa unnið leikinn með nánast síðustu spyrnu tímabilsins“ sagði Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, eftir leikinn.
„Þetta er góð leið til að enda tímabilið. Við vildum enda þetta á sigri og við gerðum það. Mér fannst leikurinn mjög jafn og gæti hafa dottið báðum megin. Í seinni hálfleik fannst mér við aðlagast vel að því hvernig þær stilla upp sinni vörn. Við vorum þolinmóðar og teygðum aðeins á þeim. Heilt yfir flott frammistaða.“
Það hefur verið áhugi á Kötlu Tryggvadóttur erlendis og aðspurður hvort að það sé eitthvað komið inn á borð til hans segir hann:
„Það er hennar markmið og það er eitthvað sem hún þarf að skoða sjálf ef hún er tilbúin að taka þetta næsta skref, ég veit að hvar sem hún er vill hún spila. Ef ég á að vera eigingjarn þá væri ég til í að vinna með henni eitt ár í viðbót þar sem hún gæti gert sig gildandi, hún vann núna Efnilegust annað árið í röð og hún hefur þroskast en ég held að hún geti ennþá lært eitthvað frá mér.“
Það hafa verið háværar sögur að Nik sé að taka við Breiðablik en að fyrra bragði talar hann um næsta ár í Þrótti. Hann var spurður út í sögusagnirnar og sagði:
„Ekkert eins og staðan er núna, ég verð áfram hjá Þrótti. Ef það er áhugi þá mun það koma í ljós, það er gott að vera orðaður við Breiðablik, þau hafa náð góðum árangri.“



