Arsenal leikur Evrópudeildarleik á óvenjulegum tíma í dag, klukkan 15:50. Liðið heimsækir þá Vitoria SC í Portúgal en leikurinn verður sólarhring á undan hinum 23 leikjunum í Evrópudeildinni.
Ástæðan fyrir þessum furðulega leiktíma er sú að á fimmtudeginum leikur Braga gegn Besiktas. 24 kílómetrar eru milli heimavalla Vitoria og Braga. Með því að spila leikina ekki á sama degi er UEFA að minnka álagið á yfirvöldum í Portúgal og létta á samgöngumálum.
Arsenal er á toppi F-riðils Evrópudeildarinnar með fullt hús að loknum þremur umferðum en Vitoria er stigalaust á botninum.

Byrjunarlið Vitoria: Douglas Jesus, Garcia, Frederico Venancio, Tapsoba Rafa Soares, Pepe, Agu, Evangelista, Edwards, Duarte, Davidson.
Byrjunarlið Arsenal: Martinez, Mustafi, Sokratis Papastathopoulos, Holding, Tierney, Ceballos, Maitland-Niles, Willock, Pepe, Martinelli, Saka.
(Varamenn: Leno, Bellerin, Lacazette, Torreira, Nelson, Guendouzi Kolasinac)
Unai Emery gerir átta breytingar á byrjunarliði Arsenal en hann leikur með þriggja miðvarða kerfi í dag. Rob Holding er með fyrirliðabandið í dag en Pierre-Emerick Aubameyang, nýr fyrirliði, er ekki með. Granit Xhaka er heldur ekki með.
Emi Martinez, Shkodran Mustafi, Ainsley Maitland-Niles, Joe Willock, Bukayo Saka, Nicolas Pepe og Gabriel Martinelli koma inn í byrjunarliðið frá 1-1 jafntefli gegn Wolves.
We've made 8️⃣ changes for today's @EuropaLeague clash with @VitoriaSC1922
— Arsenal (@Arsenal) November 6, 2019
⛔️ @RobHolding95 and @MustafiOfficial return
⚡️ @Ains_7 and @kierantierney1 at wing-back
🔥 Nico, Gabi and @BukayoSaka87 up top
🏆 #UEL
Athugasemdir