Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 06. desember 2021 20:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Willy Caballero til Southampton (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Fertugi markvörðurinn Willy Caballero er genginn til liðs við Southampton. Hann er fyrrum leikmaður Chelsea og Manchester City.

Hann skrifar undir mánaðarsamning en hann kemur til liðsins til bráðabirgða vegna meiðslavandræða.

Fraser Forster var ekki í hópnum gegn Brighton á laugardaginn og McCarthy meiddist í leiknum. Hasenhuttl stjóri Southampton var ekki sáttur með hann þar sem hann sagði ekki frá meiðslunum fyrr en á 98 mínútu er Brighton jafnaði metin.

Það má búast við því að Caballero verði milli stanganna gegn Arsenal um helgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner