Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   þri 07. janúar 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Arteta: Eins og að fara til tannlæknis að spila við Leeds
Mynd: Getty Images
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, hrósaði Leeds í hástert eftir leik liðanna í enska bikarnum í gærkvöldi.

Arsenal hafði betur 1-0 en í fyrri hálfleiknum var Leeds meira með boltann og toppliðið í Championship deildinni átti 15 skot á markið gegn úrvalsdeildarliðinu.

„Það er martröð fyrir öll lið að spila gegn þeim. Ég sagði fyrir leik að það að spila á móti þeim er eins og að fara til tannlæknis," sagði Arteta.

„Þetta er erfitt og þeir gera þetta mjög erfitt. Þeir eru með frábært lið."

„Þeir eru búnir að byggja upp kraftmikið lið og standa sig svona vel á þriggja daga fresti. Þú getur séð þetta þegar þú leikgreinir leikina þeirra."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner