Arsenal verður í hvítum treyjum í bikarleiknum gegn Nottingham Forest á sunnudag. Það er gert til að vekja athygli á baráttunni gegn glæpum ungmenna í London.
27 táningar voru stungnir til dauða í London 2021 en þrátt fyrir útgöngubönn og takmarkanir var hæsta hlutfall unglingamorða í borginni síðan 2008.
27 táningar voru stungnir til dauða í London 2021 en þrátt fyrir útgöngubönn og takmarkanir var hæsta hlutfall unglingamorða í borginni síðan 2008.
„Ekki meira rautt" er átakið kallað en hægt verður að kaupa hvítu Arsenal treyjuna og fer ágóðinn í gott málefni.
Adidas tekur þátt í átakinu með Arsenal ásamt leikaranum Idris Elba og Ian Wright, fyrrum sóknarmanni Arsenal og Englands.
„Við getum ekki sætt okkur við það að ofbeldi unglinga sé tekið sem sjálfsögðum hlut í borginni okkar. Það er mikilvægt að við vinnum saman að því að skapa betra umhverfi fyrir ungt fólk," segir Wright.
Athugasemdir