Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 07. janúar 2023 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Liverpool og Woves: Gakpo byrjar á Anfield
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images

Hollenski framherjinn Cody Gakpo er í byrjunarliði Liverpool sem tekur á móti Wolves í lokaleik kvöldsins í enska bikarnum.


Gakpo er partur af ógnarsterkri sóknarlínu Liverpool ásamt Mohamed Salah og Darwin Nunez og ljóst að lærisveinar Jürgen Klopp ætla ekkert að gefa eftir í bikarnum.

Klopp gerir fjórar breytingar á liðinu sem tapaði óvænt á útivelli gegn Brentford í miðri viku. Joel Matip og Andy Robertson koma inn í varnarlínuna fyrir Virgil van Dijk og Kostas Tsimikas á meðan Jordan Henderson tekur stöðu Harvey Elliott á miðjunni. Gakpo kemur inn í byrjunarliðið fyrir Alex Oxlade-Chamberlain sem skoraði eina mark Liverpool í tapinu gegn Brentford.

Það er ljóst að Klopp vill snúa slæmu gengi Liverpool við sem fyrst og skiptir ekki máli í hvaða keppni sigurhrinan hefst. Kvöldið í kvöld gæti verið tilvalið þar sem Úlfarnir gera níu breytingar frá síðasta leik og tefla í raun fram varaliðinu sínu.

Ruben Neves og Nathan Collins eru þeir einu sem halda byrjunarliðssætum sínum frá jafnteflisleik gegn Villa í miðri viku.

Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Matip, Konate, Robertson, Fabinho, Thiago, Henderson, Gakpo, Salah, Nunez
Varamenn: Kelleher, Gomez, Keita, Oxlade-Chamberlain, Elliott, Tsimikas, Carvalho, Phillips, Doak

Wolves: Sarkic, Lembikisa, Collins, Toti, Jonny, Neves, Hodge, Adama, Guedes, Ait-Nouri, Jimenez
Varamenn: Sa, Semedo, Bueno, Kilman, Mosquera, Ronan, Nunes, Hwang, Cunha


Athugasemdir
banner
banner
banner