Fotbolti.net
25.09.26 - 20:15
Ívan Guðjón Baldursson

Besta deild kvenna: Fram tryggði sætið - Valur þarf að treysta á jafntefli

Besta deild kvenna: Fram tryggði sætið - Valur þarf að treysta á jafntefli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Það fóru tveir leikir fram í afar spennandi fallbaráttu í Bestu deild kvenna þar sem Fram bjargaði sér frá falli með góðum sigri á Akureyri.
Heimakonur í liði Þór/KA áttu fyrsta hættulega færi leiksins strax á fjórðu mínútu en gestirnir svöruðu með marki skömmu síðar, þegar Sara Svanhildur Jónsdóttir skoraði eftir gott þríhyrningsspil í kjölfar innkasts.

Rétt rúmum tíu mínútum síðar tvöfaldaði Fram forystuna þegar Emma Kate var fljótust að bregðast við í miðjum atgangi í vítateignum eftir góða fyrirgjöf.

Bæði lið fengu færi til að bæta marki við leikinn áður en Þór/KA fékk dæmda vítaspyrnu sem Margrét Árnadóttir skoraði örugglega úr á 36. mínútu. Ashley Orkus markvörður Þórs/KA missti af fyrirgjöf og tók Lauren Lapomarda niður í leiðinni og því dæmt víti. Staðan var 1-2 eftir skemmtilegan fyrri hálfleik.

Það var lítið að frétta í síðari hálfleik sem einkenndist af baráttu, miðjumoði og stökum hálffærum. Þór/KA jók pressuna á lokakaflanum en fann ekki leið í gegnum þétta vörn Fram, sem hélt út til leiksloka.

Lokatölur 1-2 og tryggir Fram sæti sitt í Bestu deildinni á næsta ári með þessum sigri. Fram er með 26 stig fyrir lokaumferðina, fjórum stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Þór/KA situr eftir með 22 stig og er ekki í fallsæti eingöngu þökk sé markatölunni.

Þór/KA 1 - 2 Fram
0-1 Sara Svanhildur Jóhannsdóttir ('11 )
0-2 Emma Kate Young ('18 )
1-2 Margrét Árnadóttir ('36 , víti)

Lestu um leikinn


Á sama tíma gerðu Valur og Víkingur R. jafntefli á Hlíðarenda þar sem gestirnir úr Fossvogi klúðruðu dauðafæri strax á fyrstu mínútu, þegar Thea Rode mistókst að nýta sér gullið tækifæri.

Valur svaraði með opnunarmarki leiksins á 14. mínútu. Emma Hawkins kláraði fagmannlega eftir frábæran undirbúning frá Margréti Brynju Kristinsdóttur en Víkingar svöruðu sjö mínútum síðar.

Gestirnir pressuðu að marki Vals, fengu hornspyrnur og loks aukaspyrnu á miðjum vallarhelmingi Vals sem rataði á hættulegan stað í vítateignum. Valskonur komu boltanum ekki frá og endaði stórskotahríð Víkings með jöfnunarmarki frá Þórdísi Hrönn Sigfúsdóttur gegn sínum gömlu liðsfélögum.

Víkingar áttu skot í slá skömmu eftir jöfnunarmarkið og fengu bæði lið færi til að taka forystuna sem fóru forgörðum. Staðan var 1-1 eftir opinn og skemmtilegan fyrri hálfleik.

Leikurinn var áfram opinn, hraður og skemmtilegur í síðari hálfleik þar sem bæði lið fengu færi til að skora. Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir skaut til að mynda í slána en leikurinn róaðist niður á lokakaflanum. Lokatölur 1-1.

Valur er því áfram á botni Bestu deildarinnar fyrir lokaumferðina, með 21 stig, einu stigi á eftir Víkingi R. og Þór/KA.

Valur heimsækir Fram í lokaumferðinni á meðan Víkingur og Þór/KA eigast við í Víkinni.

Þetta þýðir að Valur þarf jafntefli í viðureign Víkings og Þórs/KA til að eiga möguleika á að bjarga sér.

Valur 1 - 1 Víkingur R.
1-0 Emma Hawkins ('14 )
1-1 Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir ('21 )

Lestu um leikinn
Besta deild kvenna: Fram tryggði sætið - Valur þarf að treysta á jafntefli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Fram tryggði sætið - Valur þarf að treysta á jafntefli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Fram tryggði sætið - Valur þarf að treysta á jafntefli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Fram tryggði sætið - Valur þarf að treysta á jafntefli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Fram tryggði sætið - Valur þarf að treysta á jafntefli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta deild kvenna: Fram tryggði sætið - Valur þarf að treysta á jafntefli
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.