Fotbolti.net
25.09.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

Sjáðu klúðrin: Ronaldo og Adeyemi klúðruðu dauðafærum

Sjáðu klúðrin: Ronaldo og Adeyemi klúðruðu dauðafærum
Canon

Mynd: EPA

Portúgal lagði Wales að velli í Þjóðadeildinni í gærkvöldi á meðan Þýskaland gerði jafntefli við Holland.
Þjóðadeildin: Haaland setti tvennu gegn Dönum - Gakpo eyðilagði partýið fyrir Klopp
TENGT EFNI

Þjóðadeildin: Haaland setti tvennu gegn Dönum - Gakpo eyðilagði partýið fyrir Klopp

Cristiano Ronaldo var í byrjunarliði Portúgal og klúðraði úrvals marktækifæri, sem kom þó ekki að sök í 1-0 sigri. Ronaldo fékk boltann til sín í erfiðri hæð og var með opið mark fyrir framan sig, en setti boltann yfir.

Ronaldo kom boltanum einnig í netið í leiknum en markið ekki dæmt gilt vegna rangstöðu.

Á sama tíma var Karim Adeyemi í byrjunarliði Þýskalands og lagði upp opnunarmark leiksins gegn Hollandi fyrir Felix Nmecha.

Adeyemi var líflegur og fékk algjört dauðafæri til að skora annað mark en klúðraði á ótrúlegan hátt fyrir hálfopnu marki.

Hann mun eflaust vera svekktur með klúðrið, sérstaklega í ljósi þess að lokatölur urðu 1-1.



Sjáðu klúðrin: Ronaldo og Adeyemi klúðruðu dauðafærum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.