26.09.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
„Ég vann fleiri titla en allir aðrir"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænski miðjumaðurinn Fabián Ruiz svaraði spurningum fyrir stórleik heimsmeistaranna gegn Englandi sem fer fram í kvöld.

TENGT EFNI
Yamal svarar Mbappé: Skiptir ekki máli hvað þú skorar mikið
Liðin eigast við í Þjóðadeildinni og var Ruiz spurður út í Ballon d'Or verðlaunin eftirsóttu. Verðlaunaafhendingin fer fram 26. október.
Það eru 30 leikmenn sem koma til greina í kappinu um Ballon d'Or þar sem Lamine Yamal og Kylian Mbappé eru taldir líklegir til sigurs en aðrar stórstjörnur á borð við Harry Kane, Khvicha Kvaratskhelia og Rodrigo eiga einnig sína möguleika. Fabián Ruiz er partur af umræðunni eftir að hafa verið eini leikmaðurinn sem vann bæði heimsmeistaramótið og Meistaradeildina á síðustu leiktíð.
„Af hverju ætti ég ekki að vinna Ballon d'Or?" segir Ruiz. „Ég vann fleiri titla en allir aðrir á síðustu leiktíð, þeir voru sjö talsins!"
Ruiz kom við sögu í öllum leikjum spænska landsliðsins sem vann HM í sumar. Hann var fjórum sinnum í byrjunarliðinu og kom fjórum sinnum inn af bekknum, en hann byrjaði þrjá mikilvægustu leiki mótsins gegn Belgíu, Frakklandi og Argentínu.
Hann varð þar að auki margfaldur meistari með PSG sem vann Meistaradeild Evrópu annað árið í röð og hampaði enn einum Frakklandsmeistaratitlinum.
„Í sannleika sagt þá er ég bara stoltur af því að fólk sé að minnast á mig sem mögulegan sigurvegara."