Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 07. janúar 2023 20:17
Ívan Guðjón Baldursson
Kjarnafæðismótið: Dalvíkingar fóru létt með Stólana
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dalvík/Reynir 4 - 1 Tindastóll
1-0 Halldór Jóhannesson ('39)
2-0 Númi Kárason ('58)
3-0 Númi Kárason ('75)
4-0 Sigurður Snær Ingason ('77, sjálfsmark)
Rautt spjald: Juan Carlos Dominguez Requena, Tindastóll ('39)


Dalvík/Reynir mætti Tindastóli í fyrri leik kvöldsins í Kjarnafæðismótinu og uppskar þægilegan sigur í annarri umferð mótsins.

Númi Kárason setti tvennu í sigrinum og eru Dalvíkingar með fjögur stig eftir tvær umferðir á meðan Stólarnir eru stigalausir.

KA og Völsungur eru einnig í riðlinum ásamt unglingaliði Þórs - Þór 2.

Dalvík á næst toppslag við KA og þarf afar ólíklegan sigur þar til að eiga möguleika á toppsæti riðilsins.


Athugasemdir
banner
banner