Fotbolti.net
07.02.21 - 22:54
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Keane: Þoli ekki þessi skilaboð frá Solskjær

Keane: Þoli ekki þessi skilaboð frá Solskjær
Canon

Mynd: Getty Images

Roy Keane fór mikinn sem sérfræðingur á Sky Sports í kvöld. Sjá má meira frá Keane þegar fréttir eru skoðaðar frá því fyrr í kvöld. Keane tjáði sig t.a.m. um titilvörn Liverpool.

Þegar leið á kvöldið voru ummæli Ole Gunnar Solskjær, stjóra Manchester United, til umræðu.
Solskjær sagði að ekki ætti að líta á United sem lið í titilbaráttu.

„Þetta eru ekki góð skilaboð í klefann frá Solskjær. Við höfum rætt þetta hér, t.d. eftir leikinn gegn Arsenal. Við fengum ekki tilfinninguna að United væri klárt í titilbaráttuna. Mér finnst samt að þegar þú ert að spila með Man United, og ert nálægt toppnum, þá verðuru að trúa að þú getir unnið titilinn," sagði Keane.

„Annars, til hvers ertu að þessu? Þú ert hjá Man United, þú gætir allt eins farið í eitthvað lið sem er í miðjumoði. Þú ert hjá Man United til að vinna titla, það er svo einfalt. Ég þoli ekki þessa hugmynd hjá Solskjær, sérstaklega í ljósi þess hvar liðið er í töflunni. Liðið er fullt af mörkum en það þarf að bæta hluti varnarlega. Svo er ég ekki stærsti aðdáandi markvarðarins, tvö mörk í gærkvöldi. Það sem þú vilt fá markverði þínum er hugrekki og hann sýndi ekki hugrekki þegar Everton jafnaði," bætti Keane við.

Manchester United gerði 3-3 jafntefli við Everton í gær þar sem jöfnunarmarkið kom með svo gott sem síðustu spyrnu leiksins.
Keane: Þoli ekki þessi skilaboð frá Solskjær
Canon

Mynd: Getty Images

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Arsenal000
2Aston Villa000
3Bournemouth000
4Brentford000
5Brighton000
6Chelsea000
7Coventry000
8Crystal Palace000
9Everton000
10Fulham000
11Hull City000
12Ipswich Town000
13Leeds000
14Liverpool000
15Manchester City000
16Manchester Utd000
17Newcastle000
18Nott. Forest000
18West Ham38-1939
19Burnley38-3722
19Sunderland000
20Wolves38-4120
20Tottenham000
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.