Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 07. febrúar 2021 17:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Gundogan með afar slaka vítaspyrnu gegn Liverpool
Mynd: Getty Images
Staðan er enn markalaus í stórleik Liverpool og Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.

Man City komið sér í býsna, býsna þægilega stöðu á toppi deildarinnar með sigri í þessum leik.

Þetta er búið að vera hörkuleikur til þessa en City fékk kjörið tækifæri til að komast yfir fyrir nokkrum mínútum síðan. Fabinho braut á Raheem Sterling, fyrrum leikmanni Liverpool, innan teigs og vítaspyrna dæmd.

Ilkay Gundogan, sem hefur verið frábær að undanförnu, fór á vítapunktinn. Vítaspyrna hans var hins vegar afar slök. Hann setti boltann yfir markið.

Myndband af þessu öllu saman má sjá hérna.
Athugasemdir
banner