Einar Örn Andrésson mun spila með Víði Garði á keppnistímabilinu en þetta staðfesti félagið í gær.
Einar skrifaði undir lánssamning við Víði út þetta tímabil en hann er samningsbundinn Keflavík.
Einar þekkir vel til liðsins en hann spilaði þar í láni árið 2019 og spilaði þá alls 12 leiki í deild og bikar.
Leikmaðurinn er fæddur árið 2000 og spilaði með Njarðvík í 2.deildinni síðasta sumar og kom við sögu í níu leikjum.
Víðir mun leika í 3. deildinni í sumar en liðið féll úr 2. deildinni síðasta sumar.
Athugasemdir