Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 07. maí 2021 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Atli Gunnar í FH (Staðfest)
Atli var á bekknum í æfingaleik gegn Leikni fyrir mót
Atli var á bekknum í æfingaleik gegn Leikni fyrir mót
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Atli Gunnar Guðmundsson er genginn í raðir FH frá Fjölni.

Atli kemur til með að vera til halds og trausts fyrir Gunnar Nielsen sem er aðalmarkvörður félagsins.

Atli kemur í FH í kjölfarið á að Daði Freyr Arnarsson fór á láni til Þórs og verður Daði á Akureyri út tímabilið.

Atli er Seyðfirðingur sem var markvörður Fjölnis undanfarin tvö tímabil. Hann lék með Hugin til ársins 2017 og svo með Fram tímabilin 2017 og 2018.

Atli er kominn með leikheimild og verður sennilega á bekknum þegar FH mætir Val á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner