Fotbolti.net
07.06.21 - 12:56
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Tilboð Villa heillaði meira en tilboð Arsenal - Nafnarnir góðir félagar

Emi Buendia gegn Man Utd

Emi Buendia gegn Man Utd

Canon

Mynd: Ajax

Football.london fjallar í dag um kaup Aston Villa á argentínska miðjumanninum Emiliano Buendia frá Norwich. Miðillinn fjallar um félögin í London og reyndi Arsenal einnig að fá Buendia. En af hverju gekk það ekki upp?
Norwich samþykkti mettilboð frá Aston Villa í miðjumanninn. Heimildarmenn football.london segja að Arsenal hafi haft mikinn áhuga á að fá leikmanninn og hafi boðið í hann á miðvikudag.

Arsenal á að hafa boðið Buendia sömu laun og hann mun fá hjá Aston Villa en kauptilboð Aston Villa hafi heillað Norwich meira en tilboð Arsenal.

Greiðslur Arsenal til Norwich voru öðruvísi uppsettar og þar að auki bauð Aston Villa Norwich að fá 10% af næstu sölu.

Það gæti einnig spilað inn í að Buendia er með sama umboðsmann og Emiliano Martinez, markvörður Aston Villa og fyrrum markvörður Arsenal.

Þeir Emi og Emi eru góðir félagar og tengjast fjölskylduböndum.

Buendia var valinn besti leikmaður Championship þegar Norwich flaug upp úr deildinni í vor.
Emiliano Martinez

Emiliano Martinez

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.