Michael Olise, Arne Slot, Julian Alvarez, Rafael Leao, Yan Diomande og fleiri góði koma til sögu í slúðrinu
   sun 07. júní 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
5. deild: Nýráðinn þjálfari Harðar skoraði í fyrsta sigrinum
Vladimir Tufegdzic byrjar vel sem spilandi þjálfari Harðar
Vladimir Tufegdzic byrjar vel sem spilandi þjálfari Harðar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Vladimir Tufegdzic, nýráðinn þjálfari Harðar, var á skotskónum í 2-0 sigri liðsins á KFS í 5. deildinni í gær.

Tufa tók við Herði á dögunum sem var án stiga eftir þrjár umferðir.

Hörður sameinaðist við 2. flokk Vestra og var Tufa ráðinn til að þjálfa liðið, en hann verður með Einar Óla Guðmundsson sér til aðstoðar.

Tufa hjálpaði Vestra að komast upp í efstu deild árið 2024 og var hluti af liðinu sem varð bikarmeistari á síðasta ári. Hann er nú kominn í Hörð og skoraði í fyrsta leik sínum sem þjálfari liðsins og það í fyrsta sigri þess á tímabilinu.

Fyrstu stig Harðar í hús sem leika í A-riðli deildarinnar en í B-riðlinum unnu Hamrarnir 2-1 sigur á RB. Marinó Bjarni Magnason og Gunnlaugur Bjarnar Baldursson sáu um endurkomu liðsins, en Marinó jafnaði með marki úr vítaspyrnu á 43. mínútu og skoraði Gunnlaugur sigurmarkið undir lok leiks.

Hamrarnir eru á toppnum með 9 stig en RB í öðru sæti með 7 stig.

A-riðill:

KFS 0 - 2 Hörður Í.
0-1 Vladimir Tufegdzic ('53 )
0-2 Emil Leó Jónþórsson ('81 )

B-riðill:

Hamrarnir 2 - 1 RB
0-1 Mustafa Troncoso Espinar ('2 )
1-1 Marinó Bjarni Magnason ('43, víti )
1-1 Gunnlaugur Bjarnar Baldursson ('90 )
5. deild karla - A-riðill
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Smári 4 4 0 0 16 - 3 +13 12
2.    Uppsveitir 3 3 0 0 6 - 3 +3 9
3.    Skallagrímur 4 2 1 1 16 - 7 +9 7
4.    SR 4 2 1 1 11 - 6 +5 7
5.    KFS 4 1 0 3 9 - 9 0 3
6.    Þorlákur 3 1 0 2 6 - 7 -1 3
7.    Hörður Í. 4 1 0 3 6 - 11 -5 3
8.    Afríka 4 0 0 4 0 - 24 -24 0
5. deild karla - B-riðill
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Hamrarnir 4 3 0 1 12 - 6 +6 9
2.    RB 4 2 1 1 16 - 11 +5 7
3.    Stokkseyri 4 2 1 1 9 - 6 +3 7
4.    Kría 4 2 1 1 8 - 9 -1 7
5.    KM 4 2 0 2 13 - 9 +4 6
6.    BF 108 4 1 1 2 4 - 8 -4 4
7.    KB 4 1 0 3 7 - 12 -5 3
8.    Léttir 4 1 0 3 7 - 15 -8 3
Slapp
banner
banner
banner