Fotbolti.net
07.07.26 - 00:11
Brynjar Ingi Erluson
Gatorade

Gatorade-bikar Fótbolta.net: Haukar kláruðu KFR í fyrri hálfleik

Haukar flugu áfram í 8-liða úrslit bikarsins

Haukar flugu áfram í 8-liða úrslit bikarsins

Canon

Mynd: Sigurður Elefsen

KFR 0 - 3 Haukar
0-1 Pablo Oshan Punyed Dubon ('18 )
0-2 Ólafur Darri Sigurjónsson ('30 )
0-3 Reynir Leó Egilsson ('39 )
Haukar eru komnir áfram í 8-liða úrslit Gatorade-bikars Fótbolta.net eftir góðan 3-0 sigur á KFR á Hvolsvelli í kvöld.

Öll mörk Hauka komu í fyrri hálfleik. Pablo Punyed, spilandi aðstoðarþjálfari Hauka, skoraði fyrsta markið á 18. mínútu áður en Ólafur Darri Sigurjónsson bætti við öðru tólf mínútum síðar.

Reynir Leó Egilsson gerði síðan þriðja og síðasta mark Hauka nokkrum mínútum fyrir lok fyrri hálfleiks.

Haukar flugu því áfram í 8-liða úrslitin og eru fyrstir allra liða til að tryggja sér sæti þar í ár.

Liðið hefur verið frábært á tímabilinu og er einnig á toppi 2. deildarinnar með 23 stig og aðeins tapað tveimur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.