Fréttamannafundur FH: Voru miklir möguleikar á sigri
Auglýsing

Heimir Guðjónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Heimir Guðjónsson, þjálfari FH, og fyrirliðinn Ólafur Páll Snorrason sátu fyrir svörum á fréttamannafundi eftir 0-0 jafnteflið gegn Austria Vín í kvöld. Austurríkismennirnir komast áfram þar sem þeir unnu fyrri leikinn 1-0.
Heimir Guðjónsson
Ég er gríðarlega svekktur. Við fengum tækifæri til að vinna þennan leik. Það voru miklir möguleikar og þá er maður gríðarlega svekktur. Mér fannst þeir ekki skapa sér næstum því eins mörg færi og þeir gerðu úti. Við náðum að nýta okkur ákveðna veikleika í vörninni hjá þeim en oft á tíðum vantaði herslumuninn.
Við hefðum getað gert betur. FH-liðið í dag verður ekki sakað um að reyna ekki. FH-liðið spilaði virkilega vel í kvöld og ég held að menn geti verið sáttir við frammistöðuna þrátt fyrir að úrslitin hafi ekki verið að óskum.
Mér fannst við betra liðið í leiknum og við náðum að halda boltanum vel innan liðsins. Við verðum ekki sakaðir um að reyna ekki.
Mér fannst dómarinn allt í lagi bara. Það var gaman eftir leik þegar hann kallar á leikmenn í báðum liðum og segir þeim að labba saman út af vellinum. Ég hef aldrei orðið vitni að svona áður.
Nú tekur við forkeppni Evrópudeildarinnar og nú er bara að bíða og sjá hverja við fáum. Nú er smá frí frá Evrópukeppni og þá förum við að fókusa aftur á deildina. En það eru væntanlega miklir möguleikar þar líka.
Ólafur Páll Snorrason:
Eins og Heimir segir þá erum við svekktir. Við lögðum mikið á okkur en náðum ekki að búa til þetta eina mark sem við náðum. Það er smá doði yfir leikmönnum eftir þetta en það er bara eðlilegt.
Ákvarðanatökur inn á síðasta þriðjung fara illa með þetta í dag. Við fengum fullt af tækifærum og ég þar á meðal átti að gera mun betur í fyrirgjöfum og öðru. Við vorum búnir að skipuleggja okkur mjög vel og þar með loka á þeirra spil og þeirra upplegg.
Við höfðum fulla trú á verkefninu og höfðum trú á því að geta komist áfram. Annars hefðum við getað pakkað saman. Við vorum á ákveðnum tímapunktum nálægt því að ná marki en það datt ekki fyrir okkur.
Dómarinn var mjög spjaldaglaður og það pirraði okkur aðeins. En á heildina litið hafði það ekki áhrif á úrslitin.
Hægt er að horfa á fréttamannafundinn í heild í sjónvarpinu hér að ofan