07.08.16 - 22:19
Ívan Guðjón Baldursson
Gulli Jóns: Við féllum eins illa á prófinu og hægt er
Auglýsing

Gunnlaugur Jónsson.

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Gunnlaugur Jónsson, þjálfari ÍA, var allt annað en sáttur með frammistöðu sinna manna í 4-0 tapi gegn Fjölni fyrr í kvöld.
Gunnlaugur segist vera ánægður með að fá 8 daga til að undirbúa hópinn fyrir næsta leik.

„Þetta var bara hræðilegt. Við féllum á þessu prófi eins illa og hægt er,\" sagði Gunnlaugur.
Ármann Smári Björnsson, fyrirliði ÍA, meiddist snemma í leiknum og þurfti að skipta honum útaf. Gulli viðurkennir að það hafi haft mikil áhrif á hópinn.
„Við vitum alveg að hann er mjög mikilvægur, fyrirliði liðsins og drifkraftur. En lið á ekki að falla saman eins og spilaborg þegar hann fer útaf, þó hann sé mikilvægur.\"
Að lokum sagði Gulli að bakvörðurinn Arnór Snær Guðmundsson er að yfirgefa félagið.
„Það er klárt að hann er að fara til Bandaríkjanna, hann fer daginn eftir næsta leik.\"