„Ég bjóst við minna. Mér fannst við sýna frábæra frammistöðu í kvöld," sagði Maurizio Sarri, þjálfari Juventus, eftir 2-1 sigur á Lyon í kvöld. Sarri var þarna spurður hvort hann hefði búist við meiru frá sínu liði.
Sigurinn dugir Juventus ekki því Lyon vann fyrri leik liðanna í febrúar, 1-0, á sínum heimavelli og fer því áfram á útivallarmörkum skoruðum.
Sigurinn dugir Juventus ekki því Lyon vann fyrri leik liðanna í febrúar, 1-0, á sínum heimavelli og fer því áfram á útivallarmörkum skoruðum.
„Við lentum undir eftir tíu mínútur þegar þeir skora úr víti. Það hefði getað gert okkur klikkaða. Við náðum að snúa leiknum, komum til baka og unnum leikinn og ofan á það bjuggum við til sex eða sjö góð marktækifæri."
„Liðið hefur farið í gegnum endurskoðun undanfarna daga og ef það væri ekki fyrir að við séum úr leik væri ég mjög sáttur með frammistöðuna. Því miður föllum við út vegna fyrri leiksins, nánar tiltekið fyrri hálfleiksins í fyrri leiknum. Þessi keppni tekur enga fanga og þrátt fyrir góð úrslit í keppninni erum við úr leik."
„Ég veit ekki hvort þið sáuð PSG á móti Lyon í síðustu viku en Lyon var aldrei undir jafn mikilli pressu þar og þeir voru í dag sem þýðir að við vorum að valda þeim vandræðum."
„Þetta hefur verið langt tímabil. Við höfum verið mánuð heima, sumir gátu svo farið að æfa en aðrir voru í sóttkví, það var ekki auðvelt að ná liðinu öllu á sama stað," sagði Sarri þegar hann var beðinn um að gera leikinn upp í kvöld.
Móðgandi spurning
Að lokum var hann spurður við hverju hann byggist þegar hann hittir ráðamenn hjá Juventus á morgun. Einhver umræða hefur verið um framtíð Sarri og hvort að tap í kvöld væri mögulegur endapunktur fyrir ítalska stjórann.
„Það er ekki erfitt að túlka mín orð. Ég held að stjórnarmenn á svona stóru sviði munu taka ákvörðun út frá einum leik. Þeir munu skoða tímabilið í heild sinni. Mér finnst svona spurning móðgandi en ekki gagnvart mér, hún er móðgandi gagnvart stjórnarmönnunum. Ég er samningsbundinn og ég mun virða það en ég býst ekki við neinu," sagði Sarri.
Athugasemdir