12.09.26 - 18:35
Ívan Guðjón Baldursson
England: Tottenham getur ekki skorað mark

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Tottenham 0 - 0 Everton
Tottenham tók á móti Everton í næstsíðasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og voru heimamenn sterkari aðilinn í fyrri hálfleik.
Lærlingum Roberto De Zerbi tókst þó ekki að skapa sér dauðafæri og var staðan markalaus í leikhlé.
Gestirnir í liði Everton voru sterkari aðilinn í síðari hálfleik og sköpuðu nokkur hættuleg færi, en tókst ekki að setja boltann í netið.
Lokatölur urðu því 0-0 í áhugaverðum slag þar sem bæði lið fengu færi til að skora. Lærlingar David Moyes fengu hættulegustu færin á meðan heimamenn í Tottenham héldu boltanum betur og sköpuðu mikið af hálffærum.
Tottenham er því komið með tvö stig eftir fjórar umferðir á nýju úrvalsdeildartímabili. Liðið er ekki ennþá búið að skora mark og er með markatöluna 0-5.
Everton er enn taplaust, með sex stig eftir fjórar umferðir.