Mollee Swift: Líklega stærsta augnablik ferilsins

Mollee Swift átti stóran þátt í bikarmeistaratitli Þróttar með góðri frammistöðu í markinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mollee Swift átti stóran þátt í bikarmeistaratitli Þróttar með góðri frammistöðu í markinu

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mollee Swift, markvörður Þróttar, átti stóran þátt í 1-2 sigri liðsins gegn Grindavík/Njarðvík í úrslitum Mjólkurbikarsins. Hún sagði sigurinn líklega vera stærsta augnablik ferilsins.
„Við höfum verið að byggja upp að þessu. Við höfum tekið hvern einasta bikarleik eins og þetta væri bara næsti leikur og treyst sjálfum okkur,“ sagði Mollee eftir leik.
Grindavík/Njarðvík hafði unnið báða deildarleiki liðanna í sumar og vissi Mollee að erfitt verkefni biði Þróttara.
„Við höfðum spilað tvo erfiða deildarleiki gegn þeim. Við vissum að þær myndu mæta af krafti og þær þekkja okkur vel. Allir leikmenn liðsins stigu hins vegar upp og áttu stór augnablik í dag.“
Mollee var spurð hvort bikarsigurinn væri stærsta augnablik ferilsins.
„Ég held að það sé líklega rétt. Þetta er virkilega flott og mjög sérstakt. Systir mín gat flogið hingað og verið með mér, sem gerir þetta enn sérstakara.“
Nú tekur við fögnuður hjá Þrótturum.
„Allir fagna saman. Við eigum þetta skilið og það er sérstaklega ánægjulegt að gera þetta fyrir félagið. Þróttur er sérstakur staður.“
Katherine Amanda Cousins sneri aftur til Þróttar í sumar og hefur gengið liðsins heldur betur batnað, segir Mollee að hún hafi haft mikil áhrif á liðið.
„Katie er einstök. Hæfileikarnir voru þegar til staðar hjá okkur en hún nær því besta fram í öllum. Hún kemur með ótrúlega jákvæða orku og við getum treyst henni í öllum aðstæðum. Það hefur verið mjög gott að fá hana aftur.“
