Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 07. ágúst 2022 07:00
Brynjar Ingi Erluson
Salah í hóp með Lampard, Rooney og Shearer
Mohamed Salah
Mohamed Salah
Mynd: EPA
Egypski sóknarmaðurinn Mohamed Salah skoraði sjötta tímabilið í röð í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar er hann komst á blað í 2-2 jafntefli Liverpool gegn Fulham í gær.

Salah kom til Liverpool frá Roma árið 2017 og skoraði þá strax í fyrstu umferð en hann hefur gert það öll tímabil síðan.

Hann er eini leikmaðurinn í sögu úrvalsdeildarinnar til að afreka þetta.

Ekki nóg með það þá tókst honum að jafna Frank Lampard, Wayne Rooney og Alan Shearer.

Þeim tókst að skora átta mörk í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar á ferlinum og náði Salah að jafna það í gær. Ágætlega vel mannaður hópur sem hann er partur af.

Salah lagði upp fyrra mark Liverpool í leiknum fyrir Darwin Nunez, sem síðan launaði honum greiðann stuttu síðar.
Athugasemdir
banner
banner
banner