Fotbolti.net
05.08.26 - 23:47
Brynjar Ingi Erluson

FIFA gefur út að Infantino verði áfram eftir krísufundinn

Gianni Infantino og Donald Trump

Gianni Infantino og Donald Trump

Canon

Mynd: EPA

Gianni Infantino verður áfram forseti FIFA, að minnsta kosti í bili, eftir sjö klukkustunda krísufund í Rabat í Marokkó í dag.
Fundurinn var haldinn í kjölfar þess að Infantino reyndi að selja einkafjárfestum hlut í félagi sem átti að halda utan um heimsmeistaramótið og aðra viðskiptastarfsemi FIFA.

Hugmyndin féll illa í kramið hjá flestum aðildarsamböndum FIFA. Tillögunni var hafnað og Infantino neyddist til að draga hana til baka. Síðan þá hafa kröfur um afsögn hans orðið sífellt háværari.

Sjö klukkustunda krísufundur fór fram í Rabat en niðurstaðan varð sú að Infantino heldur starfi sínu. Hann nýtur áfram fulls stuðnings stjórnar FIFA og Mattias Grafström aðalritara, sem lýsti málinu fyrir fáeinum dögum sem sorglegri atburðarás.

Fréttastofa Sky fékk að sjá bréf sem sent var til aðildarsambandanna og undirritað af Infantino og Grafström. Þar báðust þeir innilegrar afsökunar á mistökunum sem gerð voru við meðferð tillögunnar.

FIFA sendi jafnframt frá sér opinbera yfirlýsingu þar sem sambandið svaraði gagnrýnendum sínum fullum hálsi.

„FIFA mun ekki sætta sig við árásir á heilindi sambandsins, góða stjórnarhætti og réttláta málsmeðferð. Gripið verður til allra nauðsynlegra ráðstafana til að vernda nafn og orðspor sambandsins,“ sagði í yfirlýsingunni.

Sambandið sagði að aldrei hefði staðið til að útiloka aðildarsamböndin frá ferlinu. Jafnframt var viðurkennt að standa hefði átt öðruvísi að málum og að fleiri mistök hefðu verið gerð eftir að tillögunni var lekið til fjölmiðla.

FIFA hefur lofað að rannsaka fíaskóið og verður skýrsla um málið birt á næsta þingi sambandsins.

Sambandið telur að krísufundurinn geti orðið fyrsta skrefið í að byggja upp traust að nýju. Hann eigi jafnframt að hjálpa FIFA að takast á við komandi stórmót og áskoranir af meiri samheldni og gagnsæi.

Infantino hefur verið forseti FIFA frá árinu 2016 og hefur tvisvar verið endurkjörinn. Hann ætlar aftur fram á næsta ári en nokkur aðildarsambönd hafa þegar dregið stuðning sinn við hann til baka.

Búist er við að Infantino fái öflugan mótframbjóðanda þegar forsetakosningarnar fara fram í mars.

FIFA gefur út að Infantino verði áfram eftir krísufundinn
Canon

Mynd: EPA

FIFA gefur út að Infantino verði áfram eftir krísufundinn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.