Fotbolti.net
06.08.26 - 12:51
Elvar Geir Magnússon

UEFA lætur skoða hvort það hafi verið maðkur í mysu Infantino

Infantino verður áfram forseti FIFA, í bili að minnsta kosti.

Infantino verður áfram forseti FIFA, í bili að minnsta kosti.

Canon

Mynd: EPA

UEFA, fótboltasamband Evrópu, hyggst láta framkvæma óháð mat á áformum FIFA um sölu tengda heimsmeistaramótinu. Frá þessu greinir Guardian.

Grunsemdir eru um að Gianni Infantino, forseti FIFA, hafi samið um sölu á framtíðarhagnaði mótsins til einkahlutafélags á verði sem er undir markaðsvirði.

Infantino sendi frá sér afsökunarbeiðni í gær en hún hefur engin áhrif á afstöðu UEFA.
FIFA gefur út að Infantino verði áfram eftir krísufundinn
TENGT EFNI

FIFA gefur út að Infantino verði áfram eftir krísufundinn

Eftir harða gagnrýni og mikil mótmæli hætti FIFA við áætlanir sínar um að bjóða utanaðkomandi fjárfestum að innviðum sambandsins. Fjárfestingarsjóðurinn sem FIFA hafði rætt við, Thrive Capital, er undir stjórn Josh Kushner en bróðir hans, Jared Kushner, og Ivanka dóttir Donald Trump Bandaríkjaforset eru gift.

UEFA hafði lykiláhrif í að FIFA hætti við áætlanirnar en öll 55 aðildarsambönd UEFA höfðu hótað því að sniðganga HM ef þær næðu í gegn.

Talið var að staða Infantino sem forseti FIFA væri í hættu en eftir krísufund alþjóða sambandsins í gær tillkynnti stjórnin að hann nyti enn fulls trausts og yrði áfram forseti.
Gianni Infantino og Aleksander Ceferin, forseti UEFA.

Gianni Infantino og Aleksander Ceferin, forseti UEFA.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.