Fotbolti.net
07.09.17 - 20:36
Kristófer Jónsson

Grétar Sigfinnur: Við eigum enga möguleika

Auglýsing
Grétar Sigfinnur: Við eigum enga möguleika
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grétar Sigfinnur fyrirliði Þróttar var að vonum súr eftir 3-1 tap gegn Fylkismönnum í sannkölluðum risaleik.
„Leikurinn spilaðist svolítið eins og við lögðum upp með fyrstu fimmtíu mínúturnar. Fáum mark á okkur en náum að svara á besta tíma. Við urðum svo fyrir því óláni að vera ekki nógu þéttir og fá mark á okkur eftir fjórar mínútur í seinni hálfleik.\"

Þróttarar eiga ennþá tölfræðilega möguleika á að komast upp en ansi mikið þarf að gerast til að það verði að veruleika.

„Við eigum enga möguleika. Þótt að við hefðum unnið þá hefði þetta verið í höndum Fylkismanna þannig að þetta var bara úrslitaleikur hvort við ætluðum að vera með í því eða ekki og við féllum á því prófi.\" sagði Grétar að lokum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.