Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 07. september 2020 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
Aðeins þrír með Covid eftir 1605 skimanir í úrvalsdeildinni
Mynd: Getty Images
Aymeric Laporte og Riyad Mahrez eru tveir af þremur sýktum af Covid-19 í ensku úrvalsdeildinni.

Leikmenn og starfsfólk hafa verið að taka kórónuveirupróf reglulega og voru 1605 manns prófaðir fyrstu vikuna í september.

Aðeins þrjú próf komu jákvæð til baka og eru það frábærar fréttir fyrir enska boltann.

Næstu skimanir verða athyglisverðar þar sem leikmenn eru að koma til baka eftir landsliðsskyldur erlendis.

Leikmenn sem greinast jákvæðir eru sendir í sóttkví tíu daga, eða þar til þeir geta skilað inn tveimur neikvæðum sýnum með nokkurra daga millibili.

Laporte og Mahrez eru báðir sem betur fer einkennalausir.
Athugasemdir
banner
banner