Fjórum leikjum var að ljúka í B-deild Þjóðadeildarinnar rétt í þessu og litu nokkur áhugaverð úrslit dagsins ljós.
Norður-Írar tóku á móti Norðmönnum og voru fjögur mörk skoruð á fyrstu nítján mínútum leiksins. Norðmenn gerðu þrjú þeirra, þar sem Alexander Sörloth lagði upp fyrir Erling Braut Haaland og skoraði svo sjálfur.
Í seinni hálfleik endurlaunaði Haaland félaga sínum greiðann skömmu áður en ungstirnið bætti öðru marki sínu við leikinn og lokatölur 1-5.
Haaland er því kominn með þrjú mörk í fjórum A-landsleikjum. Sörloth er einnig kominn í gang og er búinn að skora sex mörk í síðustu sjö landsleikjum.
Í sama riðli hafði Rúmenía betur á útivelli gegn Austurríki í hörkuleik. Bæði lið fengu mikið af færum en lokatölur urðu 2-3 fyrir Rúmenum.
Rúmenar eru því á toppi riðilsins með fjögur stig. Austurríki og Noregur eru með þrjú stig og situr Norður-Írland eftir á botninum með eitt stig.
Norður-Írland 1 - 5 Noregur
0-1 Mohamed Elyounoussi ('2)
1-1 Paddy McNair ('6)
1-2 Erling Braut Haaland ('7)
1-3 Alexander Sörloth ('19)
1-4 Alexander Sörloth ('47)
1-5 Erling Braut Haaland ('58)
Austurríki 2 - 3 Rúmenía
0-1 D. Alibec ('3)
1-1 C. Baumgartner ('17)
1-2 D. Grigore ('51)
1-3 A. Maxim ('70)
2-3 K. Onisiwo ('81)
Í næsta riðli áttust Tékkland og Skotland við í umtöluðum leik, sem Tékkar vildu fresta vegna Covid smita í hópnum.
UEFA gaf ekki leyfi til að fresta viðureigninni og voru Tékkar án lykilmanna sinni Patrick Schick og Tomas Soucek því þeir höfðu átt í nánum samskiptum við sýktan einstakling í starfsteyminu.
Tékkar létu fjarveru stjörnuleikmanna sinna ekki hafa mikil áhrif á spilamennskuna og voru þeir mun betri heldur en Skotar.
Tékkar komust yfir í fyrri hálfleik en Lyndon Dykes jafnaði fyrir leikhlé. Eftir leikhlé skoraði Ryan Christie úr vítaspyrnu og náðu Tékkar ekki að brjóta skipulagða vörn Skota á bak aftur þrátt fyrir margar tilraunir.
Skotar stálu því sigrinum, en í heildina áttu Tékkar 19 marktilraunir gegn 6 hjá Skotum.
Ísrael gerði þá 1-1 jafntefli við Slóvakíu.
Skotar eru á toppi riðilsins með fjögur stig. Tékkar eru með þrjú stig, Ísrael með tvö og Slóvakía eitt.
Tékkland 1 - 2 Skotland
1-0 Jakub Pesek ('12)
1-1 Lyndon Dykes ('27)
1-2 Ryan Christie ('52, víti)
Ísrael 1 - 1 Slóvakía
0-1 M. Duris ('14)
1-1 I. Elmkies ('91)
Að lokum fóru tveir leikir fram í C-deildinni þar sem Kasakstan tapaði fyrir Hvíta-Rússlandi áður en Albanía tapaði afar óvænt gegn Litháen.
Kasakstan 1 - 2 Hvíta-Rússland
0-1 M. Bordachev ('53)
1-1 A. Aymbetov ('62)
1-2 V. Lisakovich ('86)
Albanía 0 - 1 Litháen
0-1 D. Kazlauskas ('51)
Athugasemdir